Ég gat ekki sofið í nótt fyrir áhyggjum. Var svo vitlaus í gær að ramba á svo hroðalega frétt á Sky-News. Þar var umfjöllun um hund sem hafði verið handtekinn fyrir það eitt að eigandi hans gleymdi að setja á hann Múl. Í London er það skylda að hundar séu með múl, á almannafæri. Eigandi þessa tiltekna hunds var sem sé kærulaus og fyrir vikið lenti hvutti á dauðadeild. Þar mátti hvutti dúsa í fjögur ár. Ætli það séu ekki 25 ár í hundárum talið. Steininn í þessari stórmerkilegu frétt tók úr þegar fréttamenn Sky-News mættu á svæðið og tóku viðtal við hundinn: þar sem hann var nýslopinn úr prísundinni. Hvutti sagði fátt, en sleifaði því meira í míkrafóninn. Við Halla vorum eitthvað að velta þessari frétt fyrir okkur. Mun ekki næsta skref í stöðunni vera að gera mynd um helv..hundinn. Hún gæti heitið því skemmtilega nafni Dead- dog-Walking.